Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið staðfesti nýlega kröfu Matvælastofnunar að matvælafyrirtæki bæri að viðhafa daglegt eftirlit með þeim meindýravörnum sem fyrirtækið kaus að nota á starfsstöð sinni (svokallað „músahótel“ án tilkynningarbúnaðar).
Daglegt eftirlit fyrirbyggir óþarfa þjáningu dýra og uppsprettu sýkla sem ógnað geta matvælaöryggi. Í boði eru annars konar meindýragildrur en kærandi hefur notað og hafði Matvælastofnun leiðbeint fyrirtækinu um það.
Þær eru með búnaði sem tilkynnir ef meindýr er komið í gildrurnar og er þá daglegt eftirlit óþarft.
Álit ráðuneytisins var að Matvælastofnun hefði gætt meðalhófs í kröfum sínum og ekki gengið harðar fram en þyrfti.
Úrskurður atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins
Mynd/pixabay