Í gær föstudaginn 31. ágúst fékk Grunnskóli Fjallabyggðar afhentar 10 tölvur frá sjóðnum Forritarar framtíðarinnar.

“Tölvurnar munu koma að góðum notum fyrir nemendur á unglingastigi” segir á heimasíðu skólans.

Markmið sjóðsins  „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins.

Hollvinir sjóðsins leggja sjóðnum lið með peningaframlögum og tækjabúnaði s.s. tölvum. Grunn- og framhaldskólar geta sótt um styrki í sjóðinn. Úthlutanir eru í formi styrks til þjálfunar á kennurum til að kenna forritun og tækjabúnaði. Skólar sem fá styrk skuldbinda sig til að setja forritun á námskrá í að lágmarki 2 ár.

Ísland stendur frammi fyrir þeirri staðreynd að það er skortur á upplýsingatæknimenntuðu fólki í landinu. Háskólar útskrifa tæknimenntað fólk sem annar um það bil 50% eftirspurnar atvinnulífsins. Á næstu árum er því þörf fyrir að minnsta kosti 100% aukningu á þessu sviði til þess að brúa bilið.

Upplýsingatæknigeirinn vex hraðar en aðrir geirar og má segja að nánast engin atvinnugrein sé án tækni. Jafnvel bóndi mjólkar með tölvum. Auk þess er mikill skortur á tækni- og tölvukennslu í grunn- og framhaldsskólum landsins. Í fyrsta til tíunda bekk er einungis 2,68% af vikulegum kennslutíma ráðstafað í upplýsinga- og tæknimenntun. Þá er búnaður margra skóla gamall og úreltur.

Þótt börn og unglingar verji miklum tíma í notkun tækni er nauðsynlegt að þau fái þá þjálfun og þekkingu sem þarf til þess að þau geti nýtt sér tækninaí víðari skilningi. Til að bregðast við ofangreindu er sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” stofnaður.

 

Frétt: Kristín Sigurjónsdóttir
Mynd: Grunnskóli Fjallabyggðar
Heimild og skjáskot: Forritarar framtíðarinnar