Þriðjudaginn 10. maí fór fram lokakeppni Evrópukeppninnar í fjármálalæsi en það var 10. bekkur Grunnskóla Fjallabyggðar sem sigraði keppnina hérlendis og tók því þátt fyrir Íslands hönd.

Skólinn tilnefndi tvo fulltrúa í Evrópukeppnina en það voru þau Alex Helgi Óskarsson og Isabella Ósk Stefánsdóttir.

Evrópukeppnin fór fram á rafrænu formi og voru því þátttakendur víðsvegar í Evrópu að svara samtímis spurningum um fjármál. Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri Fjármálaleikanna á Íslandi, kom og var á staðnum meðan nemendur tóku þátt.

Sigurlaug Ragna Guðnadóttir kennari sagði árangurinn hafa náðst með mikilli samheldni hópsins og hvatningu. „Nemendur voru tilbúnir að einhenda sér í verkefnið og vanda sig frekar en flýta sér. Það skiptir nefnilega máli að ýta ekki strax á hinn augljóslega svarmöguleika, heldur gefa sér tíma til að hugsa.”

Nemendum skólans gekk mjög vel í keppninni og svöruðu 19 spurningum rétt af 21.

Það dugði því miður ekki til að komast í verðlaunasæti en það var Noregur sem bar sigur úr býtum, Ítalía lenti í 2. sæti og Írland í 3. sæti.

Engu að síður glæsilegur árangur hjá krökkunum og við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Á forsíðumynd: Alex og Isabella, mynd Grunnskóli Fjallabyggðar

Fleiri myndir má sjá á vefsíðu Grunnskóla Fjallabyggðar