Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á glútenfríum el TACO TRUCK Corn-Tortillum sem fyrirtækið Steindal ehf. flytur inn. Ástæðan fyrir innköllun er að það greindust leifar af glúteni í tortillum. Innköllun nær einungis til Corn-Tortillas, tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir glúteni. Varan hefur verið tekin úr sölu og innkölluð frá neytendum.

Innköllunin á einungis við um eftirfarnar framleiðslulotur:

  • Vörumerki: El Taco Truck
  • Vöruheiti: Corn Tortillas 195gr
  • Lýsing á vöru: Mexíkó vefjur
  • Framleiðandi: El Taco Truck
  • Innflytjandi: Steindal ehf
  • Framleiðsluland: Mexíkó
  • Rekjanleika upplýsingar: allar lotur
  • Strikanúmer: 7350115945011
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Dreifingalisti: Allar verslanir Krónunnar og Melabúðin

Hægt er að skila vörunni til innflytjanda og fá endurgreitt. Varan er skaðlaus þeim sem eru ekki með óþol eða ofnæmi fyrir glúteni.

Mynd/MAST