Í dag eru margir á vegum landsins á leiðinn heim eftir hvítasunnuhelgina.

Spáð er góðu ferðaveðri víða um land, veðurspár Veðurstofu Íslands næstu daga eru eftirfarandi.

Í dag:
Austan 8-15 m/s, en 13-23 sunnantil, hvassast syðst. Lengst af rigning á sunnanverðu landinu. Rigning eða slydda á norðurhelmingi landsins seinnipartinn og snjókoma á heiðum og til fjalla. Hiti 1 til 10 stig, mildast sunnanlands.

Sunnan 5-13 á morgun, en heldur hvassara við norðurströndina í fyrstu. Dálitlar skúrir á víð og dreif, en rigning fram eftir degi suðaustanlands. Hiti 5 til 12 stig.
Spá gerð: 19.05.2024 09:55. Gildir til: 21.05.2024 00:00.

Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir, en styttir upp um landið austanvert seinnipartinn. Hiti 6 til 12 stig.

Á miðvikudag:
Suðvestan 5-13 en austlæg átt 5-10 á Vestfjörðum. Skúrir á vestanverðu landinu en lengst af þurrt austanlands. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag:
Vestlæg átt 3-10 og stöku skúrir, en suðaustanátt og fer að rigna sunnan- og vestanlands undir kvöld. Hiti 3 til 10 stig.

Á föstudag:
Suðaustlæg átt og súld eða rigning sunnan- og vestanlands, en dregur úr úrkomu síðdegis. Bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Hiti 9 til 14 stig.

Á laugardag:
Útlit fyrir austlæga átt. Lítilsháttar væta um sunnan- og vestanvert landið en bjart að mestu fyrir norðan og austan. Hlýtt í veðri.

Mynd/Veðurstofa Íslands