Gulrótar- og tómatsúpa með kókosmjólk (fyrir 4-6)

  • 1 msk kókosolía eða ólívuolía
  • 1 laukur, hakkaður
  • 2 hvítlauksrif, hökkuð
  • 1 tsk túrmerik
  • 10 gulrætur, skolaðar og sneiddar
  • 1 dós (400 g) plómutómatar eða um 5 hakkaðir ferskir tómatar
  • vatn, nóg til að fljóti yfir
  • sjávarsalt og svartur pipar
  • 1 dós (400 g) kókosmjólk

Hitið olíu í potti. Bætið lauki, hvítlauki og túrmerik í pottinn og steikið við vægan hita þar til mjúkt. Bætið gulrótum og tómötum í pottinn og eldið í um mínútu, hrærið í pottinum á meðan. Hellið vatni yfir þannig að rétt fljóti yfir og kryddið með sjávarsalti og pipar.

Látið sjóða við vægan hita í 15-20 mínútur eða þar til gulræturnar eru orðnar mjúkar. Maukið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél, bætið síðan kókosmjólk saman við og smakkið til. Ef súpan er bragðdauf getur verið gott að setja smá grænmetis- eða kjúklingakraft í hana.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit