“Það er ekki viðunandi að fóðra vargfugl í nágrenni við æðarvarp og matvælaframleiðslu“,
er haft eftir Sigurjóni Þórðarsyni framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra á vef Bændablaðsins bbl.is
Ingvar H. Jakobsson hjá ferðaþjónustunni á Ytri-Árbakka og Ástmundur og Hanný Norland, æðarbændur á Sæbóli á Vatnsnesi, sem einnig reka hrossaræktarbúið Hindisvík, sendu sveitarstjórn Húnaþings vestra bréf í fyrrahaust þar sem krafist er úrbóta á frárennslismálum sláturhússins á Hvammstanga. Þar kemur fram að mjög mikil og greinileg mengun hafi runnið frá sláturhúsinu mörg undanfarin ár og að þau hafi reglulega kvartað undan henni bæði við heilbrigðisfulltrúa og MAST.
„Mengunin lýsir sér þannig að fitubrák og annar úrgangur rekur á fjörur sem hænir að hundruð máva og einnig hrafna. Einnig finnst greinileg lyktarmengun þegar fitulögin þrána í fjörunum, sem gerir þær óhæfar til útivistar,“ segir í bréfi þeirra til sveitarstjórnar.