Í tilefni af 75 ára kaupstaðarafmæli Ólafsfjarðar þann 1. janúar sl. býður Fjallabyggð íbúum og öðrum gestum til kaffisamsætis, undir berum himni, í Strandgötunni Ólafsfirði (gegnt Pálshúsi) laugardaginn 1. ágúst frá kl. 14:30-17:00. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna.

Dagskrá laugardagsins er afar fjölbreytt og ættu allir að geta notið menningar, tónlistar og auðvitað bragðað á dásamlegri 6 metra afmælistertu í boði Fjallabyggðar. 

Laugardagur 1. ágúst

Kl. 09:00                  Fánar dregnir að húni.

Kl. 10:00-12:00  “Náttúra og listsköpun” Gróðursetning á vegum Skógræktarfélags Fjallabyggðar. Öllum gefst kostur á að gróðursetja plöntur og drekka kaffi úti í náttúrunni. Umsjón: Anna María Guðlaugsdóttir. 
 
Kl. 13:30    Pálshús – Opnun Ólafsfjarðarstofu  og myndlistarsýning. Tinna Gunnarsdóttir opnar sýningu á annarri hæð Pálshúss.

Kl. 14:00  Pálshús;  Hljómur úr firði – Litir frá J.S.Bach.
„Hljómur úr firði – Litir frá J.S.Bach“ er titill samsýningar Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar myndlistarmanns og Tinnu Gunnarsdóttur vöruhönnuðar. Verk þeirra beggja miða að því að miðla hrynjanda, litum og formum úr ólíkum uppsprettum.
 ,,Hljóðmynd” – Ólöf Sigursveinsdóttir leikur sjöttu einleikssvítu J.S.Bach við myndlistarverk Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar.

Kl. 14:30-17:00 Hátíðarkaffi fyrir bæjarbúa og aðra gesti í Strandgötu (gegnt Pálshúsi)

  • Ávarp
  • Kaffi, afmælisterta, grillaðar pylsur og drykkir
  • Tónlistaratriði
  • Hoppukastalar fyrir börnin

Kl. 16:00 Tjarnarborg; Úrdráttur úr leikritinu „Horfðu glaður um öxl“ eftir Guðmund Ólafsson í flutningi Leikfélags Fjallabyggðar. Félagar úr Leikfélagi Fjallabyggðar flytja dagskrá úr söguannál „Horfðu glaður um öxl“ sem fluttur var 1995 þegar Ólafsfjörður átti 50 ára kaupstaðarafmæli. Guðmundur Ólafsson tók saman.

Tónlistarhátíðin Berjadagar er haldin í Ólafsfirði og hefst dagskráin fimmtudaginn 30. júlí og stendur fram á sunnudagskvöld 2. ágúst.

Kl. 20:00 Tjarnarborg – Óperukvöld við tjörnina. Hrólfur Sæmundsson baríton og Sigrún Pálmadóttir sópran syngja við undirleik Elju kammersveitar, aríur eftir Georg Friedrich Händel, Giuseppe Verdi og Richard Wagner.  Í tilefni 250 ára afmælis Beethoven leikur Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson, píanóleikari saman sónötu nr. 2 í g-moll fyrir píanó og selló. Þorsteinn Gauti leikur einnig einleik á flygilinn í Tjarnarborg verk eftir Edvard Grieg og Maurice Ravél. Veisla söngs og leiks lýsir þessari kvöldstund þar sem tónlistin sprettur fram í ýmsum myndum og formum. 

Flytjendur:
Hrólfur Sæmundsson baríton, Ólöf Sigursveinsdóttir selló, Sigrún Pálmadóttir sópran, Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanó, Elja Kammersveit o.fl.
Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann Bjarnason
Listrænn stjórnandi: Ólöf Sigursveinsdóttir

Miðaverð er 3.500 kr.  Miðasala fer fram á www.tix.is og við innganginn. Frítt fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára.  Hlekkur á miðasölu er hér!

Kl. 22:00 Tjarnarborg –  Hundur í óskilum upp á svið.  Eftir viðburðaríkan laugardag verður öllu tjaldað til. Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen taka hús á Firðinum og skreyta hátíðina eins og þeir hafa áður gert í Ólafsfirði með leik og söng. Miðaverð er 2.000 kr. og fer miðasala fram á www.tix.is og við innganginn. Frítt fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára. Hlekkur á miðasölu er hér!

Forsíðumynd: Magnús G. Ólafsson