Opinn kynningarfundur í Húnavallaskóla á morgun, sunnudaginn 12. janúar kl. 16:00 – 17:30.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs, en frumvarp þar að lútandi er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

ATH! Um er að ræða fund sem til stóð að halda 7. janúar sl. en fresta þurfti vegna veðurs.

Frumvarpið tekur til stofnunar þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, á landsvæði sem er í sameign þjóðarinnar; þjóðlendum og friðlýstum svæðum innan miðhálendisins. Þetta er í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa allra þingflokka og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, sem vann að undirbúningi stofnunar þjóðgarðsins.

Á fundinum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarpsins.

Fundurinn er öllum opinn – verið velkomin.

Mynd og texti: facebook síða Umhverfis- og auðlindaráðuneytis