Bilun kom upp í borholu á Siglufirði í gær sem leiddi til skerts framboðs á heitu vatni í bænum. Íbúar voru hvattir til að fara sparlega með heita vatnið á meðan unnið var að viðgerð, að því er fram kom í tilkynningu frá Rarik.

Þar kom jafnframt fram að gert væri ráð fyrir að viðgerð lyki klukkan 16.00 þriðjudaginn 3. mars 2026.

Viðgerð er nú lokið og samkvæmt upplýsingum frá Rarik ætti þrýstingur á heitu vatni á Siglufirði því að vera kominn í eðlilegt horf.

Mynd: Skjáskot af vef Rarik.is