Í ljósi aukningar á útbreiðslu COVID-19 kynnti ríkisstjórnin hertar aðgerðir innanlands.

Tíu manna fjöldatakmörkun tekur gildi á miðnætti og á við um alla þá sem eru fæddir fyrir árið 2015.

Lík­ams­rækt­ar­stöðvar munu loka ásamt leik­hús­um, börum, spilasölum og kvik­mynda­hús­um.

Skólastarf er bannað frá og með deginum í dag til 1. apríl á öllum skólastigum nema leikskólum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að byrjað verði að bólusetja með AstraZeneca að nýju og hægt verði að bólusetja alla heilbrigðisstarfsmenn og fólk eldra en 70 á næstu tveimur vikum. Einnig að stefnt er á að bólusetja þjóðina fyrir lok júlí. 

Fyr­ir­komu­lagið mun gilda í þrjár vik­ur.