Lögreglan á Norðurlandi vestra segir að það sé búið að loka þjóðveginum um Holtavörðuheiði vegna ófærðar og óveðurs.
Ekki er reiknað með að opnað verði fyrir umferð fyrr en í fyrramálið að sögn lögreglu.
„Vegurinn um Laxárdalsheiði er fær en tvísynt er um færð yfir Bröttubrekku. Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með á vefjum Vegagerðarinnar,“ segirjafnframt á facebooksíðu lögreglunnar
Nánari upplýsingar um færð á vegum.