Seinni hunda og kattahreinsun fer fram í Fjallabyggð í dag fimmtudaginn 14. nóvember.

Dýralæknir verður að Námuvegi 11 (Olís portið) Ólafsfirði kl. 13:00-15:00 og Áhaldahúsinu á Siglufirði kl. 16:00-18:00

Áríðandi að allir hundar og kettir séu hreinsaðir!

Vakin er athygli á því að skilyrði fyrir hreinsun er að búið sé að borga leyfisgjald. Framvísa þarf endurnýjun tryggingarskírteinis. Þeir sem ekki gera grein fyrir hundum og/eða köttum sínum, með því að mæta í hreinsun, eða framvísa vottorði að dýr þeirra sé hreinsað, mega gera ráð fyrir að verða sviptir leyfi til hunda- og/eða kattahalds.