Ingvi Örn Friðriksson

Kjör íþróttamanns Dalvíkurbyggðar fór fram við hátíðlega athöfn í Bergi í gær kl. 17:00. 

Það var kraftlyftingamaðurinn Ingvi Örn Friðriksson sem varð fyrir valinu í ár en hann hefur stundað klassískar kraftlyftingar undanfarin ár með stórgóðum árangri. 

Á þessu ári varð hann til að mynda í landsliði KRAFT, varð í 2. sæti á Reykjavíkurleikunum og íslandsmeistari í réttstöðulyftu. Hann varð bikarmeistari í þyngdarflokk og á stigum, ásamt því að verða efstur á styrkleikalista 2019. Innilega til hamingju Ingvi Örn!


Aðrir tilnefndir voru eftirtaldir aðilar:

Amanda Guðrún Bjarnadóttir – golf
Andrea Björk Birkisdóttir – skíði
Elín Björk Unnarsdóttir – sund
Svavar Örn Hreiðarsson – hestar
Sveinn Margeir Hauksson – knattspyrna

Íþrótta- og æskulýðsráð veitti heiðursverðlaun á athöfninni en þau komu að þessu sinni í hlut Kristjáns Ólafssonar sem hefur verið afar virkur í starfsemi íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð í áratugi. Kristján er afar vel að þessum heiðursverðlaunum kominn og óskum við honum innilega til hamingju.

Kristján Ólafsson


Einnig voru við þetta tækifæri afhentir styrkir til iðkenda og voru þeir afhentir í eftirfarandi röð:

a) Rebekka Lind Aðalsteinsdóttir vegna ástundunar og árangurs í knattspyrnu.
b) Amalía Nanna Júlíusdóttir vegna ástundunar og árangurs í sundi.
c) Ingvi Örn Friðriksson vegna ástundunar og árangurs í kraftlyftingum.
d) Amanda Guðrún Bjarnadóttir vegna ástundunar og árangurs í golfi.
e) Guðfinna Eir Þorleifsdóttir vegna ástundunar og árangurs á skíðum.
f) Snorri Guðröðarson vegna ástundunar og árangurs í frisbí-golfi.
g) Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir vegna ástundunar og árangurs í knattspyrnu.



Þá var knattspyrnudeild Dalvíkur/Reynis einnig veittur styrkur vegna búnaðarkaupa fyrir afreksþjálfun á nýjum gervigrasvelli.

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri undirritaði, f.h. Dalvíkurbyggðar, samninga við íþróttafélögin sem gilda til næstu 4 ára. 

Sjá fleiri myndir á vef Dalvíkurbyggðar: HÉR