Á fundi Skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar þann 3. febrúar sl. var tæknideild falið að vinna að bættu umferðaröryggi á gatnamótum Hólavegar og Hlíðarvegar á Siglufirði.

Tillaga tæknideildar, sem fól í sér að banna innakstur við umrædd gatnamót, var kynnt íbúum og húseigendum Hólavegar 3-19.

Tvær ábendingar bárust þar sem annars vegar var lagt til að gatan yrði einstefnugata til suðurs og hins vegar lagt til að innakstur yrði frekar bannaður við hinn enda götunnar, við gatnamót Hólavegar og Hlíðarvegar til norðurs þar sem sjónsvið ökumanns, þegar hann keyrir niður Hólaveg að syðri gatnamótunum, er verulega skert til beggja átta.

Ef götunni (Hólavegi 3-19) yrði breytt í einstefnugötu þá yrði aukning á umferð um þröng syðri gatnamót Hólavegar og Hlíðarvegar og því samþykkir nefndin að áfram verði leyfð tvístefna í götunni.

Þar sem sjónsvið ökumanns er ekki gott til hægri og vinstri þegar ekið er að umræddum gatnamótum frá Hólavegi er einnig samþykkt að þar verði stöðvunarskylda í stað biðskyldu. Nefndin samþykkir einnig að gangstétt verði lengd niður að gatnamótum.