Í kjölfar ytra mats hefur lokaskýrsla verið birt á heimasíðu Grunnskóla Húnaþings vestra ásamt umbótaáætlun skólans. Öll gögn er varða ytra og innra mat skólans má nálagst á vefsíðu skólans: Innra mat.
Ábendingum um skólastarfið, skipulag eða atriði í umbótaáætlun er hægt að koma til skólastjórnenda eða einhverra í matsteyminu.
Hér má sjá nýjustu fundargerð matsteymis:
Matsteymi 007 fundur
22. janúar 2020
Mættir:
Sigurður Þór, Eydís Bára, Ellen Mörk, Sólrún, Hafdís Brynja, Borghildur
- Ytra mat. Farið yfir umbótaáætlun í tímaröð.
Huga að því að allir hagsmunaaðilar taki þátt í stefnumótun skólans.
- Ákveðið að útvíkka matsteymi sem fundi 2-4 sinnum á ári:
i. Ákveðið að nemendaráð geri tillögu að því hvaða nemendur og hversu margir sitji í matsteymi.
ii. Ákveðið að foreldrafélagið tilnefni fulltrúa foreldra og fjölda þeirra í matsteymi.
iii. Ákveðið að fulltrúi skólayfirvalda í matsteymi verði sviðsstjóri.
iv. Ákveðið að fundargerðir matsteymis verði opinberar á heimasíðu.
Tengja símenntunaráætlun við umbótaverkefni
Símenntunaráætlun er komin á heimasíðu skólans og er tengd þeim umbótaverkefnum sem skólinn leggur áherslu á: námskrá, leiðsagnarmat og námsmat.
Gera þarf tilfærsluáætlun við skólalok og milli skóla
Fylgja hæfniviðmið í mentor nemendum sem flytjast á milli skóla?
Persónumappa er alltaf send í viðtökuskóla.
Persónumappa fer á skjalasafn við útskrift.
Endurskoða þarf vinnsluskrá met tilliti til nýrra starfsheita, s.s. ritara.
Fræðsluráð lagði til að tvær dagsetningar yrðu settar á önn þar sem farið er yfir stöðu á umbótaáætlun. 4. mars og 20. maí. verða þessar dagsetningar.
Frestað til næsta fundar:
- Greining Skólapúlsins á samræmdum prófum. Byrjað á að fara yfir verklag um yfirferð samræmdra prófa.
- 4. mars og 20. maí – staða á umbótaáætlun.
- Lesfimiskýrsla.