Fólkið á Norðurlandi vestra

eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) sem SSNV stendur fyrir, þar sem rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum.

Í dag birtist nýtt viðtal í þessari seríu, og er nýtt viðtal birt vikulega á miðvikudögum.

FM Trölli sendir viðtölin út að kvöldi birtingardags, þannig að viðtal vikunnar verður á dagskrá FM Trölla í kvöld kl. 21. Viðtölin eru u.þ.b. 20 – 30 mínútur að lengd og að þessu sinni ræðir Unnur Valborg Hilmarsdóttir við Sigurð Líndal sem fluttist til Hvammstanga frá London árið 2015 eftir að hafa starfað þar við leiklist, leikstjórn, kennslu og hjá ferðarisanum Expedia.

Sigurður fékk starf sem framkvæmdastjóri Selasetursins á Hvammstanga og hefur látið til sín taka í menningarmálum svo eftir er tekið. Sigurður Líndal spjallar við Unni um mikivægi menningar fyrir byggðarlög og segir frá þeim verkefnum sem hann hefur staðið fyrir á Norðurlandi vestra.

Hér eru þrjár leiðir til að sækja “podcast-ið” í mismunandi tækum. Einnig má hlusta á vefnum með því að smella hér.

feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml