Þetta jólaball var með eindæmum vel lukkað og allir skemmtu sér vel, börn jafnt sem jólasveinar, pabbar, mömmur, afar og ömmur og nokkrar langömmur og langafar líka. Krakkarnir fengu nammi frá jólasveinunum, vöfflur með sultu og róma og heitt súkkulaði og allskonar sykurleðju drykki.
Allir 130, fóru ánægðir og glaðir heim og margir náðu góðu spjalli við ættingja og gamla vini frá Sigló, sumir voru skyldir í báðar ættir. Nokkrir voru frá Siglunesi og aðrir ættaðir úr Héðinsfirði og svei mér þá ef það var ekki slatti af Fljóta-ættar fólki þarna líka.
Það var með eindæmum gaman og gleðjandi að sjá svona marga unga Siglfirsk ættaða foreldra mæta á jólaballið.
ATH. Smellið á mynd og hún birtist ykkur stærri.
Jólasveinarnir voru mjög ánægðir með ballið, en þurftu að flýta sér heim á Tröllaskaga, Grýla og Leppalúði voru víst búinn að bjóða þeim heim í hellirinn sinn og þar býður þeirra heit bjúgu með uppstúf, Ora grænum baunum og kartöflum, kannski hangikjöt líka, ef Grýla er í góðu skapi.
Stjórn Siglfirðingafélagsins þakkar öllum sem lögðu hönd á plóg í undirbúningsvinnu og fyrir gómsætar veitingar, en þessar þrjár dömur fá sérstakar og miklar þakkir fyrir þeirra framlag!
P.s. Langamma Kittý var þarna líka, en hún er komin á eftirlaun eftir áratuga sjálfboðavinnu fyrir félagið.
Sérlegur fréttaritari Trölli.is kom alla leið frá Svíþjóð til að taka þátt í ekta Sigló jólagleði og tók samtímis myndir af allt og öllu.
Bestu jóla og Sigló saknaðarkveðjur til ykkar allar!
Nonni Björgvins
Höfundur/ljósmyndari/myndvinnsla:
Jón Ólafur Björgvinsson