Undanfarin ár hefur KSÍ greitt sérstakt framlag til aðildarfélaga, annarra en félaga í efstu deild karla, vegna barna- og unglingastarfs.

Framlagið sem hefur verið greitt samhliða framlagi frá UEFA til félaga í efstu deild karla hefur til þessa verið greitt að hausti. Á fundi stjórnar KSÍ þann 8. apríl síðastliðinn var samþykkt að flýta greiðslu á 75% af áætlaðri upphæð og verður upphæðin færð á viðskiptareikning aðildarfélaga þann 17. apríl næstkomandi. 

Greiðslan til félaganna skal renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokks karla og kvenna og áskilur stjórn sér rétt til að kalla eftir staðfestingum frá aðildarfélögum sínum um ráðstöfun styrksins.

Úthlutun er háð því að félög haldi úti starfsemi í yngri flokkum beggja kynja og skulu félög sem eru utan deildarkeppni (eða eru ekki með starfsemi hjá báðum kynjum) framvegis sækja um styrk til barna- og unglingastarfs og sýna fram á starfsemi sína og skal það gert fyrir 31. desember 2020.

Dæmi um kostnaðarliði í þessu starfi eru laun þjálfara, ferðakostnaður vegna þátttöku í keppni, aðstöðuleiga, kaup á tækjum og áhöldum.

Að þessu sinni hlaut Knattspyrnufélag Fjallabyggðar framlag að upphæð 1.125.000 kr. frá KSÍ. Einnig hlaut Dalvík/Reynir á Dalvík sömu upphæð.

Mynd: Guðný Ágústsdóttir