Fotbolti.net var með umfjöllun sem sjá má hér að neðan um leik KF og Augnabliks sem fram fór á Ólafsfjarðarvelli í gær. Þar vann KF góðan 2-0 heimasigur á Augnablik í 3. deild karla.

Bæði mörk KF skoraði Ljubomir Delic. Það fyrra kom eftir klafs í teignum eftir hornspyrnu og það seinna eftir fallega fyrirgjöf sem Ljuba skallaði í fjærhornið.

KF hefði getað bætt við fleiri mörkum í seinni hálfleik en allt kom fyrir ekki.

Aksentije Milisic, Aci, var aftur kominn í byrjunarlið KF eftir að hafa glímt við meiðsli síðan í apríl. Aci spilaði fyrsta klukkutímann eða svo í dag og var sáttur með að vera loksins kominn til baka.

„Mjög feginn að vera kominn til baka. Svekkjandi að vera búinn að æfa eins og svín í allan vetur og meiðast svo í bikarleik fyrir deild,”sagði Aci eftir leik.

„Ég er mjög sáttur með sigurinn. Þetta er vígi hérna á Ólafsfirði þó okkur hafi ekki tekist að vinna hér í síðustu tveimur leikjum.”

Ljubomir Delic, serbneskur leikmaður á mála hjá KF, var á sama tíma tekinn í viðtal. Þar sem serbnesku kunnátta fréttaritarans er ekki upp á marga fiska nýtti hann sér kunnáttu Aci í serbnesku og var Aci því nýttur sem túlkur.

Ljubo var spurður út í leikinn og sérstakt atvik í leiknum þegar Alexander Már Þorláksson skoraði eftir að dómari leiksins flautaði aukaspyrnu þegar mögulega hefði mátt láta leikinn halda áfram.

„Við ætluðum að keyra á þá út á köntunum og ég er sáttur með mörkin sem ég skoraði,” sagði Ljuba.

„Við erum báðir sammála um að dómarinn gerði mistök. Dómarinn dæmdi leikinn vel en þarna hefði hann getað gert betur. Við höldum að Alexander Már sé ekki sáttur inn í klefa,” sögðu Aci og Ljuba.

Aci tjáði sig að lokum um toppbaráttuna sem er mjög spennandi. KF situr í öðru sæti og segir Aci baráttuna vera á milli efstu fjögurra liðanna, Kórdrengja, KF, KV og Vængja Júpíters.

 

.

 

.

 

.

 

.

 

.

 

Nánar er rætt við Aksentije og Ljubomir í spilaranum hér að neðan.

 

Myndir: Guðný Ágústsdóttir