Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði

Leikskólakennarar – leiðbeinendur

Við leikskólann Ásgarð eru lausar stöður

  • Ein 100% staða deildastjóra á miðstig leikskólakennari/leiðbeinenda.
  • Þrjár 100% stöður leikskólakennara/leiðbeinenda.

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Tilskilda menntun, leyfisbréf eða aðra háskóla menntun.
  • Áhuga á að starfa með börnum
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Fagmennska
  • Skipulagshæfileika
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin.

Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/

Hugmyndafræði skólans byggir á kenningum Mihaly Csikszentmihalyi, flæði.

Umsóknafrestur er til 3. júlí 2020 næstkomandi og þarf viðkomandi að hefja störf 13. ágúst 2020. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Guðrún Lára Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 451-2343 / 891-8264

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra hvetjum við karla jafnt sem konur til að sækja um störfin.