Um komandi helgi munu um 30 manns úr Húnaþingi vestra halda áleiðis til Reykjavíkur, nánar tiltekið í Þjóðleikhúsið en síðustu daga hefur hópurinn verið við æfingar í Félagsheimilinu Hvammstanga á barnaleikritinu Pétri Pan sem sýna á í Kassanum í Þjóðleikhúsinu næstu helgi.

Hefst ferðin á vettvangsferð um Þjóðleikhúsið á föstudagskvöld og verður svo byrjað snemma á laugardagsmorgun að setja upp leikmynd í Kassanum og æfingar í framhaldi af því. Sýningar verða kl. 14:00 og kl. 17:00 á sunnudeginum 12. júní.

Þetta verður án efa skemmtilegur tími fyrir hópinn og þá sérstaklega þann krakkahóp sem tekur þátt í verkefninu.

Enn eru miðar lausir á sýningarnar en þeim fer ört fækkandi. Hægt er að kaupa miða á https://leikhusid.is/syningar/petur-pan/