Föstudaginn 12. maí kom út nýtt lag sem Már Gunnarsson var að senda frá sér.

Már hafði samband við okkur á Trölli.is og sagði:

“Síðastliðna 9 mánuði hef ég búið úti á Englandi þar sem ég er að stunda nám við enskan tónlistarháskóla.

Það hefur verið áskorun fyrir okkur leiðsöguhundinn Max að læra inn á nýjar aðstæður og bjarga okkur úti í þessum stóra heimi, en fjölmörg tækifæri hafa gefist og ég er spenntur að sjá hvað koma skal.

Núþegar er ég farinn að koma fram á ýmsum viðburðum í London og umhverfi, hef unnið tónlist með frábæru tónlistafólki í metropolis studios og síðast en ekki síðst unnið að minni eigin tónlist ásamt pródúsent í Liverpool.      

Lagið “Falling for you” er fyrsta lagið af nokkrum sem ég tek upp í Liverpool í samstarfi við Dan Scholes pródúsent.

Textahöfundur lagsins er góðvinur minn í Lúxemburg Tómas Eyjólfsson.

Höfundur lags er ég sjálfur og meðhöfundur Guðjón Steinn Skúlason.     

Lagið heitir” Falling for you” og er ballaða sem tengir saman gamalt og nýtt með fallegri laglínu og nútíma útsetningu.”

Falling for you – á Spotify