Lið Menntaskólans á Tröllaskaga tryggði sér sæti í annarri umferð Gettu betur með 11-7 sigri á liði Menntaskóla Borgarfjarðar á miðvikudaginn.

Liðið skipa Amalía Þórarinsdóttir, Hafsteinn Karlsson og Jón Grétar Guðjónsson. Liðsstjóri er Lárus Ingi Baldursson.

Skólarnir sem komust áfram eru auk MTR, Borgarholtsskóli, FÁ, FB, FG, FSU, FVA, FSH, MR, Kvennaskólinn og Tækniskólinn.

Næsta viðureign MTR verður í næstu viku.

Mynd/ HHÓ