Menntaskólinn á Tröllaskaga hefur haft samband við alla nemendur sem eiga lögheimili í Grindavík, vegna jarðhræringanna þar og þess ástands sem þær hafa í för með sér.

Farið var yfir með hverjum og einum hvaða leiðir eru í boði og hvernig áætlað er að vinna með þeim út önnina. Sama á við björgunaraðila sem hafa verið við störf í Grindavík.

Ef einhverjir hafa orðið útundan, búa í Grindavík en eru ekki með lögheimili þar eða eru við björgunaraðgerðir og hafið ekki haft samband vinsamlegast hafið samband við Birgittu umsjónarkennara fjarnáms, birgitta@mtr.is eða í síma 862 6987.