Þann 15. ágúst tók Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir við stöðu sveitarstjóra í Húnaþingi vestra.

Síðastliðin tvö ár hefur Ragnheiður Jóna starfað sem framkvæmdastjóri afmælisnefndar aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Áður starfaði hún í 10 ár hjá Eyþingi, sambandi sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, sem menningarfulltrúi og verkefnastjóri uppbyggingarsjóðs.

Ragnheiður Jóna lauk MA-prófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og BA-prófi í nútímafræði frá Háskólanum á Akureyri. Auk þess hefur hún stundað nám í Opinberri stjórnsýslu og lokið námslínunni Forysta til framþróunar – leið stjórnenda til aukins árangurs, við Endurmenntun Háskóla Íslands.

 

Forsíðumynd: Húnaþing vestra