Matvælastofnun varar við neyslu á Isola BIO Cocco Cuisine kókosrjóma og Isola BIO Coconut 0% Sugars kókosmjólk frá Ítalíu sem Icepharma flytur inn. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað nokkrar framleiðslulotur sem gætu innihaldið ólöglegt varnarefnið etýlen oxíð. Fyrirtækið og eftirlitið hafa sent út fréttatilkynningu.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um innköllunina frá heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík.
Innköllunin á við eftirtaldar framleiðslulotur:
- Vörumerki: Isola BIO
- Vöruheiti: Coconut 0% Sugars (kókosmjólk ósæt)
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetningar: 15.2.2022, 23.11.2021 og 6.5.2021
- Lotunúmer: 210215, 201123 og 210126
- Strikamerki: 8023678728078
- Nettómagn: 1 l
- Framleiðandi: Ecotone, Ítalía
- Vörumerki: Isola BIO
- Vöruheiti: Cocco Cuisine (kókosrjómi)
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetningar: 28.1.2022 og 25.11.2021
- Lotunúmer: 210128 og 201125
- Strikamerki: 8023678423409
- Nettómagn: 200 ml
- Geymsluskilyrði: Á ekki við
- Framleiðandi: Ecotone, Ítalía
Dreifing: Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Kjörbúðinar, Krambúðin, Melabúðin, Brauðhúsið, Hreyfing, Iceland,
Kaupfélag V-Húnvetninga, Heimkaup, Svala Reykjavík, Veganmatur.
Neytendum sem keypt hafa vörunar er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í verslunina sem varan var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Icepharma
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík
- Innkallanir á heimasíðu Matvælastofnunar