Markaðsstofa Norðurlands heldur opna fundi á Norðurlandi vestra 3. júní nk.
Á fundunum munu þau Arnheiður Jóhannsdóttir og Björn H. Reynisson fara yfir nokkur atriði fyrir komandi mánuði. Farið verður yfir þær markaðsaðgerðir sem til stendur að ráðast í á næstu mánuðum, bæði fyrir innlendan og erlendan markað. Auk þess verða kynntar niðurstöður markaðsrannsóknar sem gerð var á síðasta ári á vegum Rannsóknarmiðstöð Ferðamála og Ferðadeild Háskólans á Hólum fyrir Markaðsstofu Norðurlands. Þar var gerð eigindleg rannsókn hjá ferðamönnum á Norðurlandi, netrannsókn á ferðaþjónustuaðilum og rannsókn á notkun samfélagsmiðla. Sóknaráætlun Norðurlands vestra studdi rannsóknirnar.
Fundirnir á Norðurlandi vestra verða haldnir á eftirfarandi stöðum:
Miðvikudaginn 3. júní – KK Restaurant, kl 9:00 – Sauðárkrókur
Miðvikudaginn 3. júní – Eyvindarstofa, kl 12:30 – Blönduósi
Miðvikudaginn 3. júní – Hótel Laugarbakki kl 16:00 – Húnaþing Vestra
Áætlað er að hver fundur verði um klukkutíma langur.
Vinsamlegast skráðu þig á fund hér.
Nánari upplýsingar veitir Björn H Reynisson, bjorn@nordurland.is eða í síma 462-3300.