Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar á Siglufirði óskar eftir kvenmanni til starfa. Um er að ræða ráðningu í framtíðarstarf og er starfshlutfall 75% sem gæti aukist á næstu mánuðum. Starfið felur í sér sundlaugarvörslu, baðvörslu, ræstingar og fleira.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Unnið er á dag- kvöld- og helgarvöktum. Leitað er að starfsmanni með góða þjónustulund sem á gott með að umgangast jafnt börn sem fullorðna. Æskilegt er að viðkomandi tali góða íslensku og geti bjargað sér á ensku.

Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.

Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf sundstaða og heimila upplýsingaöflun úr sakaskrá.

Laun skv. Kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2021.

 Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður, Haukur Sigurðsson, í síma 863-1466. Umsóknum skal skila rafrænt á vef Fjallabyggðar undir Rafræn Fjallabyggð