Óskað er eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2023.

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í  Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar voru veitt í fyrsta sinn árið 2016 og verða nú veitt í áttunda sinn á setningu Sæluviku sem fram fer í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 30. apríl nk.

Frestur til þess að senda inn tilnefningar er til og með 18. apríl nk.

Tilnefningar eru sendar inn með því að fylla út rafrænt skjal en einnig er í boði að senda tilnefningar á netfangið heba@skagafjordur.is eða skila inn skriflega í afgreiðslu Ráðhússins á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 17-21.

Eftirtaldir aðilar hafa verið sæmdir Samfélagsverðlaunum Skagafjarðar fyrir sinn þátt í að efla skagfirskt samfélag:

2016 – Stefán Pedersen

2017 – Kristmundur Bjarnason

2018 – Hjónin Árni Stefánsson og Herdís Klausen

2019 – Geirmundur Valtýsson

2020 – Helga Sigurbjörnsdóttir

2021 – Stefán R. Gíslason

2022 – Helga Bjarnadóttir