Ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar var haldið 25. maí síðastliðinn og fór það fram í Vallarhúsinu á Ólafsfirði.

Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf auk afgreiðslu á reglugerðarbreytingum.

Nýr formaður var kjörinn, Óskar Þórðarson, en hann hefur verið varaformaður undanfarin ár. Aðrir í stjórn voru kjörnir Eva Björk Ómarsdóttir, Arnheiður Jónsdóttir og Anna Þórisdóttir, sem allar áttu sæti í stjórn áður, og Kristján Hauksson sem kemur nýr inn í stjórnina. Varamenn voru kjörin þau Jón Garðar Steingrímsson og Jónína Björnsdóttir.

Mynd/af vefsíðu UMFÍ