Pestósnúðar
- frosið smjördeig
- pestó að eigin vali (mælt er með tómata og ricotta pestó frá Filippo Berio)
- rifinn ostur, t.d. Ísbúi
- gróft salt
Látið smjördeigið þiðna og fletjið það síðan út. Breiðið pestó yfir og stráið rifnum osti yfir. Rúllið upp, skerið í sneiðar og raðið á smjörpappír. Stráið grófu salti yfir og bakið í 225° heitum ofni þar til snúðarnir hafa fengið fallegan lit.
Berið strax fram.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit