Í dag kl. 17 – 18 er þátturinn Plötuspilarinn á dagskrá FM Trölla.

Oskar Brown umsjónamaður þáttarins er Íslendingur búsettur á Englandi. Oskar er alæta á tónlist og reynir að spila sem fjölbreyttasta tónlist í þættinum, allt frá 1950 til dagsins í dag, með sérstaka áherslu á íslenska tónlist.

Næsti þáttur af Plötuspilaranum fer í loftið á FM Trölla í dag frá kl. 17.

Sem fyrr inniheldur þátturinn í dag frábæra tónlistarblöndu þar sem ægir saman gömlum og nýjum lögum víðsvegar að úr heiminum. Á meðal þeirra sem að koma við sögu í þættinum í dag eru Daniil, Demo, Elíza Newman, Ender Bender, FLOTT,  Only Child, og Smári Guðmundsson ásamt Fríðu Dís. 

Ekki gleyma að hlusta á þáttinn á https://www.surreyhillsradio.co.uk/ og á https://trolli.is/

Útsendingatíðni FM Trölla er FM 103.7 fyrir þá sem búa í Eyjafirði, í Ólafsfirði, á Siglufirði, í Skagafirði eða á Hvammstanga.