Þátturinn verður sendur út beint frá Studio 7 á Englandi og í dag mun Oskar Brown bjóða hlustendum FM Trölla upp á einstaka tónlistarblöndu þar sem lög um ástina ráða ríkjum.
Þrátt fyrir efnisvalið þá verður ekkert verið að velta sér upp úr sorg og sút. Lögin eru flest í fjörugri kantinum og fjalla um ástina á jákvæðan hátt.
Á meðal þeirra sem að koma við sögu eru Bon Jovi, Hljómar, Krummi, Love Guru, Martha Reeves & The Vandellas, Reckless Love, ROJOR, og Ruby Moss.
Endilega stilltu á FM Trölla frá kl. 17 í dag, þú sérð ekki eftir því.
Plötuspilarinn er á FM Trölla alla föstudaga frá kl. 17:00 – 18:00.
FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is