Fólkið á Norðurlandi vestra

eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) sem SSNV stendur fyrir, þar sem rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum.

Í dag birtist nýtt viðtal í þessari seríu, og er nýtt viðtal birt vikulega á miðvikudögum.

FM Trölli sendir viðtölin út að kvöldi birtingardags, þannig að viðtal vikunnar verður á dagskrá FM Trölla í kvöld kl. 21. Viðtölin eru u.þ.b. 20 – 30 mínútur að lengd og að þessu sinni ræðir Unnur Valborg Hilmarsdóttir við Laufeyju Leifsdóttur.

Laufey Leifsdóttir, náttúrubarn og frístundabóndi, er ritstjóri hjá Forlaginu.

Þegar Laufey fluttist í Skagafjörðinn tók hún starfið sitt með sér og er forvitnilegt að heyra hvernig það kom til og hvaða kosti það hefur.

Hér eru þrjár leiðir til að sækja “podcast-ið” í mismunandi tækum. Einnig má hlusta á vefnum með því að smella hér.

feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml