Í kvöld kl. 21:00 – 23:00 er þátturinn Pörupiltar í beinni á dagskrá FM Trölla, þeir fara í loftið annan hvern föstudag.
Það eru vinirnir Valur Smári og Trausti Snær sem stjórna þættinum í beinni útsendingu frá Studio 6 á Akureyri.
Þeir félagar tala um ýmislegt sem aðrir þora ekki að tala um, svo þátturinn er ekki fyrir viðkvæma.
FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is