Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi til tveggja aðila vegna fiskeldis í Hjaltadal í Skagafirði.

Matvælastofnun endurnýjaði rekstrarleyfi Hólaskóla – Háskólans á Hólum í Hjaltadal í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 2. nóvember 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 30. nóvember 2020.

Hólaskóli – Háskólinn á Hólum sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 20 tonna lífmassa á klak-, seiða- og áframeldi á bleikju í landeldisstöð sinni, Bleikjukynbótastöðinni á Hólum. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 17. janúar 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Hólaskóla – Háskólans á Hólum FE-1155 í Bleikjukynbótastöðinni á Hólum í Hjaltadal en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Matvælastofnun veitti Eggi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Kjarvalsstöðum við Hjaltadalsá í Hjaltadal. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 5. október 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 2. nóvember 2020.

Öggur ehf. sótti um nýtt á rekstrarleyfi vegna 12 tonna hámarkslífmassa á seiða- og matfiskeldi á bleikju að Kjarvalsstöðum við Hjaltadalsá í Hjaltadal. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 7. nóvember 2014. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Aggar ehf. FE-1052 að Kjarvalsstöðum við Hjaltadalsá í Hjaltadal en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.