Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út viðauka við stefnuna „Saman gegn sóun“, sem er stefna Íslands um úrgangsforvarnir 2016-2027.
Í stefnunni er megináhersla lögð á níu flokka; matvæli, plast, textíl, raftæki, grænar byggingar og pappír. Einnig er gert ráð fyrir að unnið verði til lengri tíma með aukaafurðir frá vinnslu kjöts og fisks, drykkjarvöruumbúðir og að draga úr myndun úrgangs frá stóriðju.
Viðaukinn við stefnuna er settur til að unnt sé að meta þróun ráðstafana stefnunnar. Í honum eru settir fram mælikvarðar og markmið fyrir plast, textíl, aukaafurðir frá vinnslu kjöts og fisks, drykkjarvöruumbúðir og ál- og kísilmálmframleiðslu.
Saman gegn sóun – almenn stefna um úrgangsforvarnir 2016 – 2027 ásamt viðauka
Heimild og mynd: Stjórnarráð Íslands