Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 25. júní að ganga til samninga við Akureyri Excursion ehf. um skóla- og frístundaakstur í Fjallabyggð.

Úr fundargerð:

2. 1905060 – Tilboð á skóla- og frístundaakstri 2019-2022

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármáladeildar, dags. 18.06.2019 þar sem fram kemur að tilboð hafi verið opnuð í skóla- og frístundaakstur í Fjallabyggð 2019-2022 í ráðhúsi Fjallabyggðar þann 18.06.2019 kl.11.00.
Eftirfarandi tilboð bárust :
Ævar og Bóas ehf. kr. 25.000.-
Akureyri Excursion ehf. kr. 8.893.-
Hugheimur ehf. kr. 15.300.-
Suðurleiðir ehf. kr. 9.145.-

Deildarstjóri leggur til að gengið verið til samninga við lægstbjóðanda.

Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Akureyri Excursion ehf. sem jafnframt er lægstbjóðandi.