Mynd: Silla Páls.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar situr nú á sínum 218. fundi.

Sjöunda málið á dagskrá fundarins var ráðning bæjarstjóra Fjallabyggðar. í málefnasamningi meirihlutans var ákveðið að auglýsa starf bæjarstóra í gegnum ráðningaskrifstofu.

Sigríður Ingvarsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri Fjallabyggðar fyrir kjörtímabilið 2022 til 2026. Alls sóttu 22 einstaklingar um starfið, 8 umsækjendur drógu umsóknir sínar taka baka. Sigríður er fyrrverandi forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, eins hefur hún átt sæti á Alþingi og setið í bæjarstjórn á árum áður. Sigríður er m.a. með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og diploma gráðu í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur víðtæka reynslu af starfi með frumkvöðlum og fyrirtækjum. Hefur setið í fjölmörgum stjórnum, nefndum, ráðum og starfshópum og sinnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir hin ýmsu ráðuneyti s.s. verið stjórnarformaður yfir Átaki til atvinnusköpunar og stjórnarformaður Verknaust, þ.e. verkefnisstjórnar um nýtingu náttúruauðlinda í Þingeyjarsýslum.

Sigríður segist bæði stolt og þakklát fyrir það traust sem bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur sýnt henni með þessari ráðningu. ,,Ég er full tilhlökkunar að flytja norður í þetta blómlega og fjölskylduvæna byggðarlag og takast á við þau spennandi verkefni sem framundan eru, í samstarfi við öfluga bæjarstjórn og starfsfólk Fjallabyggðar.“

Sigríður mun formlega taka við starfi bæjarstjóra að loknum sumarleyfum en fram að þeim tíma mun hún vinna að ákveðnum málum í samvinnu við bæjarstjórn.

S. Guðrún Hauksdóttir forseti bæjarstjórnar og Guðjón M. Ólafsson formaður bæjarráðs Fjallabyggðar segja að þau hlakki til komandi kjörtímabils og til þess að takast á við þau verkefni sem eru framundan. Ráðningarferlið var unnið faglega og sóttu margir hæfir einstaklingar um stöðuna, sem er merki um mikinn áhuga á Fjallabyggð og það sé einstaklega ánægjulegt. Þau efast ekki um að hæfni Sigríðar eigi eftir að nýtast bæjarfélaginu vel á komandi árum. Reynsla og þekking hennar á fyrirtækjarekstri, hinu opinbera og samfélagsmálum muni gagnast sveitarfélaginu vel og bjóða þau hana velkomna til starfa.

Trölli.is býður Sigríði velkomna til starfa.

Sigríður Ingvarsdóttir Mynd/Andri Hrannar Einarsson