Í gær, föstudaginn 15. júlí, opnaði sýningin “Fall mannsins sem minnir á margt” eftir Ólöfu Helgu Helgadóttur í Gránu

Maðurinn sem minnir á margt er mættur í Gránu (skúlptúr & vídeó) en hann hefur annað slagið birst í verkum listamannsins frá árinu 2015. Nú síðast í Aþenu í Grikklandi í nóvember sl. í verkinu “Fæðing mannsins sem minnir á margt’.

Í verkum sínum ýtir listamaðurinn hversdagslegu efni út fyrir sitt hefðbundna hlutverk og varpar þannig óvæntu ljósi á kunnugleg sjónarhorn. Efnið sem hún notar hefur auk þess oft sögulega merkingu sem er mjög persónuleg.

Ólöf Helga Helgadóttir útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2005 og lauk mastersnámi í myndlist frá Slade School of Fine Art í London árið 2010. Árið 2001 stundaði hún örnám við Kvikmyndaskóla Íslands. Hún býr og starfar á Siglufirði.

Sýningin er hluti af Frjó Listahátíð og stendur öllum opin á opnunartíma safnsins, frá kl. 10 – 18 fram til 20. júlí.

Mynd/Síldarminjasafn Íslands