Í tilefni sjómannadagsins verður fjölbreytt dagskrá í boði í Akureyrarbæ alla helgina.
Á Akureyri hefst hátíðin á laugardeginum með viðburðum í Sandgerðisbót. Þar verða tónlistaratriði, grillaðar pylsur, hoppukastalar fyrir börnin og fiskasýning. Einnig mun Landsbjörg kynna sjóbjörgunarbúnað. Húni II siglir í minningarferð til heiðurs látnum sjómönnum.
Á sunnudeginum, sjálfum sjómannadeginum, verður sjómannamessa í Glerárkirkju. Að messu lokinni verður blómsveigur lagður að minnisvarða látinna sjómanna. Að því loknu býður Sjómannafélag Eyjafjarðar upp á súpu í safnaðarheimilinu, og Húni II býður bæjarbúum í siglingu.
Í Grímsey heldur Kvenfélagið Baugur kaffihlaðborð í félagsheimilinu Múla á sunnudeginum.
Í Hrísey verður einnig líf og fjör á sunnudeginum. Þar verður sigling, sjómannadagsmessa, grillaðar pylsur og fjölbreyttir leikir og skemmtanir.
Í tilefni 80 ára afmælis Útgerðarfélags Akureyringa verður boðið upp á afmæliskaffi á laugardeginum í matsal Fiskvinnsluhúss ÚA, þar sem gestir geta einnig kynnt sér starfsemina. Á sunnudeginum opnar svo sýning í Iðnaðarsafninu á Akureyri, þar sem saga og starfsemi félagsins er rakin í máli, munum og myndum.
Hér er dagskráin í heild sinni fyrir allt sveitarfélagið.
Mynd/af vefsíðu Akureyrarbæjar