Það var árið 1919 sem tekin var í notkun fyrsta byggingin sem var sérstaklega reist fyrir heilbrigðisþjónustu á Hvammstanga, læknisbústaður sem stendur við Spítalastíg 1. Áður hafði héraðslæknir sinnt sjúklingum á heimili sínu.

Í tilefni afmælisins býður Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga í afmæliskaffi milli kl. 14 og kl. 18 fimmtudaginn 12. desember n.k. í húsnæði sjúkrahússins að Spítalastíg 1.

Tvívegis verður flutt lítil dagskrá sem vert er að hlýða á. Hún verður kl. 14:00 og 16:30 og felur í sér eftirfarandi:
• Guðmundur Haukur Sigurðsson stiklar á stóru yfir sögu sjúkrahúss Hvammstanga
• Tónlistaratriði

Litli jólabasarinn verður á sínum stað til styrktar félagsstarfinu á sjúkrahúsinu. Frammi mun liggja baukur þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að leggja í púkk og styrkja starfið.

Kvennabandið hefur veg og vanda af kaffiveitingum.