Menntaskólinn á Tröllaskaga varð í öðru sæti sem Fyrirmyndarstofnun 2020 í flokki meðalstórra stofnana að þessu sinni.

Í fyrsta sæti varð Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum. Þetta er sama röð á þessum tveimur stofnunum og var fyrir tveimur árum en í fyrra var MTR í fyrsta sæti en FV í öðru.

Fimm stofnanir í þessum flokki hljóta sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnanir, Menntaskólinn að Laugarvatni, Samkeppniseftirlitið og Menntaskólinn á Egilsstöðum auk MTR. Meðalstórar teljast þær stofnanir sem hafa 20-49 starfsmenn.

MTR hefur fjórum sinnum vermt efsta sætið í þessum flokki og þar með fengið sæmdartitilinn „Stofnun ársins“.

„Það ber að þakka stéttarfélaginu Sameyki fyrir að framkvæma þessa könnun sem er ríkisstofnunum mikilvæg þar sem marktækar upplýsingar fást um líðan starfsmanna með ítarlegri könnun. Með því móti gefst eftirsóknarvert tækifæri til að fara vel yfir niðurstöðurnar og ná markvissum umbótum. Góð líðan starfsfólks breytir miklu á vinnustað þar sem einstaklingar eru stóran hluta lífsins. Þegar fólki líður vel
næst betri samvinna milli þeirra sem eflir árangur stofnunar til að sinna markmiðum sínum..“ sagði Lára Stefánsdóttir skólameistari MTR á vefsíðu skólans.