Óskað var eftir hvaða skoðun foreldrar barna í Grunnskóla Húnaþings vestra hefðu á áframhaldandi skólastarfi eftir að úrvinnslusóttkví var aflétt.

Svör bárust frá 57 heimilum og yfirgnæfandi meirihluti leggur til að skólahald verði með sama hætti og verið hefur undanfarnar vikur. Skóli verður því lokaður næstu 4 daga fyrir páskaleyfi.

Það verður því áhersla á fjarnám fram að helgi. Síðasti kennsludagur fyrir páskafrí er föstudagurinn 3. apríl.

Foreldrum sem lenda í vandræðum með börn sín vegna atvinnu sinnar er bent á að hafa samband við skólastjórnendur og reynt verður eftir fremsta megni að finna lausnir á því. Það á bæði við þessa viku og dymbilviku.

Þegar sóttkví lýkur á morgun, þriðjudaginn 31. mars mega nemendur hittast en hafa skal í huga að nemendur blandist sem minnst milli árganga þar sem það er hægt. Minnum á tilmæli yfirvalda um sóttvarnir og tveggja metra fjarlægð á milli einstaklinga.