Skordýr fundust í Sólgæti kjúklingabaunum.

Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á einni lotu af Sólgæti kjúklingabaunum frá Heilsu ehf. vegna þess að skordýr fundust í vörunni. Heilsa sem flytur inn vöruna innkallar hana í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi lotu:

  • Vörumerki: Sólgæti
  • Vöruheiti: Kjúklingabaunir
  • Best fyrir dagsetning: 31.07.2021
  • Strikamerki: 5024425282945
  • Nettómagn: 500g
  • Framleiðandi: Pakkað í Bretlandi af The Health Store fyrir Heilsu ehf.
  • Upprunaland: Tyrkland
  • Innflytjandi: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík
  • Dreifing: Heilsuhúsin, Fjarðarkaup, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Melabúðin, verslanir Samkaupa, Nettó

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga/skila. Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í síma 533 3232 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið heilsa@heilsa.is.

Ítarefni

Skoða á mast.is