Námskeiðin “Snjóflóð 1 og 2” frá Björgunarskóla Landsbjargar voru kennd samhliða á Siglufirði um liðna helgi.

Bryndís Guðjónsdóttir frá Björgunarsveitinni Strákum var leiðbeinandi ásamt aðstoðarfólki.

Námsefnið var fjölþætt bæði bóklegt og verklegt. Kennt var mat á snjóflóðahættu og leiðarval, búnaðarkynning og notkun, leit með snjóflóðaýlum og stöngum, mokstur og björgun fólks úr snjóflóðum svo það helsta sé nefnt. Námskeiðið endaði með leitar og björgunaræfingu við raunaðstæður á Skíðasvæðinu í Skarðsdal.

Það er ómetanlegt að eiga breiðan hóp vel menntaðra björgunarsveitarmanna og kvenna í okkar nærumhverfi sem eru tilbúin að bregðast samstundis við þegar áföll verða, segir á facebooksíðu Stráka.

Myndir/Björgunarsveitin Strákar