ChitoCare Beauty body tvennan lotion og skrúbbur frá Primex hefur verið tilnefnt til alþjóðlegu Pure Beauty Awards verðlaunana sem afhent verða í Dubai 16. apríl næstkomandi.
ChitoCare Beauty er valið úr úrtaki sem telur 500 snyrtivörur sem flestar eru frá vörumerkjum sem þekkt eru um allan heim.
ChitoCare Beauty er einstök nátturuleg húðvara sem byggir á íslenskri nýsköpun. Líftæknifyrirtækið Primex hefur þróað þessa húðvöru sem inniheldur virka efnið kítósan sem hefur sterka eiginleika sem stuðla að viðgerð húðarinnar. Þetta er mikill heiður fyrir Primex en líka fyrir íslenska frumkvöðlastarfsemi.
ChitoCare beauty er ný snyrtivörulína þar sem græðandi og mýkjandi áhrif kítósan fá að njóta sín.
Liposan Ultra eru náttúrulegar trefjar sem bindast við umframfitu úr fæðunni í maganum og hafa góð áhrif á meltinguna og kólisterólið í líkamanum. Liposan er fáanlegt með C-vítamíni og króm sem gefur aukna virkni, og bæði í hylkjum og duftformi.