Ökumaður á ferðalagi í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra var í gær stöðvaður á Ólafsfjarðarvegi á hraðanum 154 km/klst.

Viðurlög við þessari háttsemi eru ökuleyfissvipting og sekt í ríkissjóð kr. 210.000.-

Lögreglan sagði á facebook síðu sinni “Þó svo að langflestir aki af ábyrgð, gætni og tillitssemi og bera sjálfum sér gott vitni og eru öðrum góð fyrirmynd, þá biðlum við til fólks að fara varlega í umferðinni. Vonum að umræddur ökumaður dagsins í dag hugsi sinn gang og komi betur stemmdur til aksturs síðar”.

Mynd/Lögreglan á Norðurlandi eystra