Sumaropnun hefst í dag fimmtudaginn 20. júní í Ljóðasetri Íslands að Túngötu 5 á Siglufirði.
Tvö skáld úr Ritlistarhópi Kópavogs, þau Sigríður Helga Sverrisdóttir og Eyþór Rafn Gissurarson, munu lesa úr verkum sínum kl. 16.00.
Opnunartími verður frá kl. 14.00 – 17.00 alla daga og á hverjum degi verða lifandi viðburðir kl. 16.00, líkt og undanfarin ár.
Enginn aðgangseyrir – Bara að njóta.

Sigríður Helga Sverrisdóttir

Eyþór Rafn Gissurarson